Ferðamáti
Lega landsins og samskiptahraði nútímans krefjast öflugra flugsamgangna til og frá landinu. Icelandair hafa annast það erfiða en mikilvæga hlutverk síðustu áratugi að halda uppi samgöngum í lofti milli Íslands og Evrópu og Íslands og Ameríku allt árið. Önnur flugfélög hafa svo bæst við yfir háfannatímann.
Skemmtiferðaskip koma hingað að sumarlagi og ferjan Norræna heldur uppi siglingum milli Íslands og Evrópu. Loks má geta þess að Eimskipafélagið annast farþegaflutninga í takmörkuðum mæli.